Viltu koma með í ævintýri?
Barnabók þar sem hreyfing, ímyndunarafl og ró fléttast saman í eina heild.
Í bókinni eru börn leidd í gegnum skemmtilegt ævintýri þar sem þau taka virkan þátt með líkama og huga. Með hjálp litríkra dýra læra þau einfaldar jógastöður, öndun og að finna sinn innri styrk á leikandi og aðgengilegan hátt.
Ævintýrajóga bókin:
styður við vellíðan og ró
eykur einbeitingu og líkamsvitund
styrkir sjálfstraust og sköpunargleði
Hentar fyrir öll börn, óháð reynslu.
Bókakynning
Hægt er að bóka skemmtilega bókakynningu um Ævintýrajóga, þar sem ég heimsæki leikskóla, grunnskóla og fyrirtæki.
Samhliða sögunni ræðum við á jákvæðan hátt um mikilvæg þemu eins og tilfinningar, sjálfstraust, hugrekki, vináttu, líkamsvitund, núvitund og hvernig við finnum innri ró.
Markmiðið er að skapa notalega stund þar sem börnin upplifa gleði, hreyfingu og slökun á sama tíma og þau fá verkfæri sem geta stutt við vellíðan þeirra í daglegu lífi.
Fyrir fyrirtæki býð ég einnig upp á sérstakar kynningar fyrir starfsfólk og foreldra þar sem ég fjalla um mikilvægi hreyfingar, núvitundar og samverustunda með börnum. Þar kynni ég hugmyndafræðina á bak við Ævintýrajóga og sýni hvernig bókin getur orðið skemmtilegt og einfalt verkfæri til að efla tengsl, vellíðan og gæðastundir fjölskyldunnar – bæði heima og í daglegu lífi.
Hentar fyrir:
Leikskóla
Yngsta stig grunnskóla
Fjölskylduviðburði og barnamenningu
Fyrirtæki og aðra vinnustaði.
.
Sendu mér línu thoraros18@gmail.com
Þóra Rós
höfundur og jógakennari
Ég er jógakennari, dansari og skapandi höfundur sem hefur sérhæft sig í hreyfingu og vellíðan fyrir börn og fullorðna.
Ég útskrifaðist sem listdansari árið 2011 frá Performing Art School í Puebla í Mexíkó. Árið 2016 lauk ég jógakennaranámi hjá Yoga Shala og sama ár opnaði ég jógastúdíóið 101 Yoga í Reykjavík. Síðan þá hef ég bætt við mig fjölbreyttum sérhæfðum námskeiðum, meðal annars í jóga fyrir börn, jóga fyrir fólk með áfallastreitu og yoga nidra. Ég lauk diplómanámi í skapandi greinum við Háskólann á Bifröst. Í því námi kviknaði hugmyndin að Ævintýrajóga
Hægt er að skoða fleira sem ég hef gert og upplýsingar um mig á 101yoga.is og yoganuna.is.
ÆVINTÝRAJÓGA NÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN.
4 vikna námskeið sem er á miðvikudögum kl. 16:15–17:00
Fyrir börn 6-7 ára
Aðeins 10 pláss í boði til að skapa notalega og persónulega stund fyrir hvert barn.
Markmið
Efla líkamsvitund og hreyfigleði
Þjálfa einbeitingu og ímyndunarafl
• Styðja við ró, sjálfstraust og samvinnu
Velkomin í töfrandi ferðalag í gegnum ævintýri, hreyfingu og slökun.
Í námskeiðinu fá börnin að kynnast jóga í gegnum sögur, leik og ímyndunarafl.
Innblásið af Ævintýrajóga þáttunum sem eru sýndir á KrakkaRÚV og bókinni – Viltu koma með í ævintýri?
Hver tími hefur sitt eigið þema þar sem börnin hitta dýr og læra einfaldar jógastöður á skemmtilegan hátt.
Námskeiðið verður haldið í safnaðarheimilinu í Laugarnesskirkju.
Lengd: 4 vikur // dagsetninga eru :
Klukkan: 16:15-17:00
Aldur: 6–7 ára
Verð: 14.900kr
Skráning fer fram með því að fylla út formið hér fyrir neðan
Hafðu samband!
Myndlýsingar
Er myndlýsir og myndlistakona sem hefur dálæti á því að teikna fallegar barnabækur sem eru uppfullar af litum, ævintýri og gleði.
Ragnheiður Ásta Valgeirsdóttir
Er myndlýsir og landslagsmálari sem elskar að skapa heillandi og töfrandi heima sem leiðir lesandann áfram í gegnum ævintýrið.
Amy Alice Riches