Viltu koma með í ævintýri?

Barnabók þar sem hreyfing, ímyndunarafl og ró fléttast saman í eina heild.

Í bókinni eru börn leidd í gegnum skemmtilegt ævintýri þar sem þau taka virkan þátt með líkama og huga. Með hjálp litríkra dýra læra þau einfaldar jógastöður, öndun og að finna sinn innri styrk á leikandi og aðgengilegan hátt.

Ævintýrajóga bókin:

  • styður við vellíðan og ró

  • eykur einbeitingu og líkamsvitund

  • styrkir sjálfstraust og sköpunargleði

Hentar fyrir öll börn, óháð reynslu.


Bókakynning

Ég kem í heimsókn með bókina Viltu koma með í ævintýri? og leiði börnin í gegnum notalega stund með upplestri, hreyfingu og slökun.

Börnin taka virkan þátt í sögunni, hitta litrík dýr og læra einfaldar jógastöður og öndun á leikandi hátt. Samhliða sögunni spjöllum við um tilfinningar, sjálfstraust, hugrekki, vináttu og hvernig við getum fundið ró innra með okkur.

Markmiðið er að börnin upplifi gleði og hreyfingu, en fái líka einföld verkfæri sem þau geta notað til að róa sig og líða vel í daglegu lífi.

Hentar fyrir:

  • Leikskóla

  • Yngsta stig grunnskóla

  • Bókasöfn, fjölskylduviðburði og barnamenningarhátíðir

Aldur: 3–5 ára
Lengd: 20–30 mínútur, hægt að skipta í tvo hópa
Staður: Ég kem í leikskólann ykkar

Hafðu samband fyrir tilboð og lausa daga

thoraros18@gmail.com

Þóra Rós Guðbjartsdóttir

Höfundur og jógakennari

Ég er jógakennari, dansari og skapandi höfundur og hef sérhæft mig í hreyfingu og vellíðan fyrir börn og fullorðna.

Ég útskrifaðist sem listdansari árið 2011 frá Performing Art School í Puebla í Mexíkó. Árið 2016 lauk ég jógakennaranámi hjá Yoga Shala og sama ár opnaði ég jógastúdíóið 101 Yoga í Reykjavík. Síðan þá hef ég bætt við mig fjölbreyttum námskeiðum, meðal annars í jóga fyrir börn, jóga fyrir fólk með áfallastreitu og yoga nidra.

Ég lauk diplómanámi í skapandi greinum við Háskólann á Bifröst og þar kviknaði hugmyndin að Ævintýrajóga. Núna er ég með vefsíðuna www.yoganuna.is og einnig er hægt að lesa meira um mig og mín verkefni á www.101yoga.is

Hafðu samband!

Myndlýsingar

Er myndlýsir og myndlistakona sem hefur dálæti á því að teikna fallegar barnabækur sem eru uppfullar af litum, ævintýri og gleði.

Ragnheiður Ásta Valgeirsdóttir

Er myndlýsir og landslagsmálari sem elskar að skapa heillandi og töfrandi heima sem leiðir lesandann áfram í gegnum ævintýrið.

Amy Alice Riches